Jökla og Fögruhlíðará

20.07.2010 13:41 - Gutti

Á sunnudaginn fóru ég og Þórhallur að veiða í Fögruhlíðará, Jöklu og tveimur hliðarám Jöklu, Kaldá og Fossá.
Á fyrri vaktinni áttum við Kaldá og Fögruhlíðarána.
Við vorum mættir um hálf sjö í Hálsakot (veiðihúsið) þar sem við hittum tvo menn frá Vötn og Veiði sem að sögðu okkur að lítil von væri á laxi í Kaldánni þar sem Kaldáin væri nánast óveiðandi vegna vantsmagns en bentu okkur á að fara niður í Kaldárósa þar sem þeir hefðu fengið einhverjar bleikjur á laugardaginn. Við tókum þá á orðinu og byrjuðum í ósnum þar sem við settum í fjórar bleikjur en aðeins ein þeirra komst á land og var það Þórhallur sem náði því. Hans fyrsti fiskur á flugu. Eftir að hafa verið í ósnum á Kaldánni ákváðum við að kíkja í Fögruhlíðarána. Þegar við vorum búnir að berja hana í svolítinn tíma hittum við á mann frá Strengjum sem sagði okkur að Laxinn væri ekki mættur í Fögruhlíðarána og sendi okkur í bleikju niður í Jöklu. En þar urðum við lítið varir við annað en sel.
Eftir hlé áttum við Jöklu og Fossá, það var ákveðið að við myndum byrja í gljúfrinu á Jöklu og hjónin sem áttu stöng á móti okkur myndu byrja í Fossá. Efsti veiðistaðurinn í Jökulsárgljúfri er mjög flottur en ekki fyrir hvern sem er að fara þangað. Við þurftum að fara niður í gljúfrið og labba eftir steinboga sem Jökla rennur undir (er samt bara grjóturð) og síðan á bát til að komast síðustu metrana.
Í gljúfrinu setti ég í einn lax sem ég var að giska á að væri um 12-14 pund. Hann tók strax roku niður ána og var ég kominn á undirlínuna nánast strax. Aðstæðurnar buðu ekki upp á mikið annað en að herða á bremsunni og taka vel á honum þar sem engin sjens var að hlaupa á eftir honum. Þessi viðureign endaði síðan með því að hann náði að slíta sig lausan, eflaust frelsinu feginn. Við urðum síðan ekkert meira varir í gljúfrinu og um sjö skiptum við síðan við hjónin sem voru á móti okkur, þau fóru í gilið og við í Fossá.
Í fossánni urðum við ekkert varir ef frá eru talin laxaseiði sem voru mjög hrifin að rauðum frances. Síðasta klukkutímanum eyddum við síðan í fallegri breiðu í Jöklu en fengum ekkert þar heldur.

Myndavélin var með í för og eru einhverjar myndir hérna

Hittingur

28.06.2010 14:20 - Gutti

Mér finnst vera svolítið langt síðan það hefur verið rætt um væntanlega veiðiferð á Melrakkasléttuna. Hvernig við ætlum að haga bílamálum ofl.
Ég var þess vegna að spá í að bjóða mönnum í kaffi og meððí í vikunni til að ræða ferðina og negla niður það sem eftir á að ákveða, sem er sennilega nánast allt nema gistingin. Hvað segja menn um fimmtudaginn kl. 20?

Ölfusá

23.05.2010 16:47 - Gutti

Í síðustu viku fannst okkar mesta að kominn væri tími til að halda til veiða. Ákveðið var að fara eftir vinnu á fimmtudeginum og skildi veitt í Ölfusánni fyrir landi Laugardæla.
Þeir sem sinntu kalli okkar mesta og fóru með í þessa ferð voru Tommi, Oddi Heiðar og undirritaður. Siggi Vals átti ekki heimangengt en passaði sig á því að óska okkur góðrar veiði áður en við lögðum í hann, það stefndi s.s. allt í enn eitt brók bakkið.
Þegar mætt var á veiðistað var Guðbjörn að venju fyrstur til að byrja veiðarnar en fyrir þá sem ekki hafa séð til hans þá er ótrúlegt að sjá hversu snöggur hann er að gera sig kláran þegar komið er á veiðistað. Eftir stuttan tíma, áður en aðrir veiðmenn voru orðnir klárir til veiða, var Guðbjörn kominn með fisk á. Ekki í fyrsta skipti sem hann leikur þann leik enda ekki okkar mestur fyrir ekki neitt. En eitthvað virðist kallinn hafa ryðgað í vetur því að sjóbirtingurinn sem hann hafði krækt í (og var engin smá smíði) slapp rétt við land.
Fátt merkilegt gerðist eftir þetta en náði ég þó að landa einum horuðum sjóbirtingi og bjarga okkur frá brókbakki með tilheyrandi endaþarms eymslum.
Eitt situr þó ennþá í mér eftir þessa ferð og það er að hafa ekki hlegið meira að Guðbirni þegar hann missti fiskinn, það er nú ekki oft sem manni gefst tækifæri til að hlæja að honum við veiðar.

Myndir

Við Siggi fórum síðan í Kleifarvatn á laugardagsmorguninn og eru myndir þaðan hérna.

Brókbakk í Þingvallavatni

13.05.2010 12:38 - Gutti

Ég og Siggi skelltum okkur snemma í morgun í Þingvallavatn á meðan aðrir “veiðimenn” í G.T.Hunting sváfu á sína græna eða létu eftirsér aðrar líkamlegar/andlegar nautnir.
Við vorum mættir á bakkann kl. 8 í morgun en veiðin var engin til að byrja með og jókst ekkert eftir því sem leið á daginn. Eftir um þriggja tíma barning var ákveðið að hætta og sætta sig við brókbakkið.
Niðurstaðan varð s.s. sú að veiðin var engin en við fengum amk. ágætis kast æfingu.

Myndr af fyrstu veiðiferð og brókbakki G.T.Hunting þetta árið (að því er ég best veit) má finna hér

Miðfjarðará

28.04.2010 20:46 - Gutti

Jæja þá er farið að styttast í Miðfjarðarána hjá okkur, amk. þeim sem eitthvað vit er í. Hinir munu væntanlega ekki breyta útaf vananum og sitja heima með þummarann á kafi í r***gatinu á sér.
En fyrir þá sem eru að fara langaði mig að deila með þeim tveimur videoum sem ég fann um “upstream nymphing”, en það hefur heyrst að þetta verði aðal veiðiaðferðin á silungasvæðinu í Miðfirðinum í sumar.
Spurning um að mastera þetta og moka bleikjunni upp í júní.

http://video.mail.ru/mail/kolumbiec61/rybalka/1702.html